Árbæjarskóli
Grunnskóli, 1.-10. bekkur
Rofabær 34
110 Reykjavík
Er barnið þitt að byrja í grunnskóla?
Á þessari síðu færðu gagnlegar upplýsingar um skólabyrjun. Eins og til dæmis hvað börnin þurfa að taka með sér í skólann og hvort börnin fái mat á skólatíma.
Skóladagatal Árbæjarskóla
Hér finnur þú skóladagatal Árbæjarskóla. Í skóladagatali eru skipulagsdagar skráðir ásamt öðrum mikilvægum upplýsingum fyrir foreldra og forráðamenn.
Matur í grunnskólum
Flestir grunnskólanemendur eru í mataráskrift. Skólamatur kostar það sama í öllum skólum. Ekki þarf að greiða mataráskrift fyrir fleiri en tvö börn frá sama heimili.
Um Árbæjarskóla
Árbæjarskóli er einn stærsti grunnskóli landsins, staðsettur í einstöku umhverfi Elliðaárdalsins. Skólinn á sér rúmlega 50 ára starfssögu. Á árunum 1956 – 1966 var Árbæjarskóli starfræktur í samkomuhúsi á Árbæjarblettinum þar sem kennt var í þremur deildum en haustið 1967 hóf skólinn göngu sín í nýju húsi með 421 nemanda.
Í dag er Árbæjarskóli grunnskóli fyrir nemendur í 1.-10. bekk. Hann er einsetinn og eru nemendur hans 700 talsins. Skólinn er safnskóli á unglingastigi en þá koma til náms nemendur úr Árbæjarskóla, Ártúnsskóla og Selásskóla. Starfsmenn skólans eru um 100 sem sinna mismunandi störfum í þágu nemenda.
Með stjórnun skólans fara auk skólastjóra, tveir aðstoðarskólastjórar, tveir deildarstjórar, nemendaráð og skólaráð.
Frístundaheimilið Töfrasel er fyrir börn í 1-4 bekk í Árbæjarskóla og félagsmiðstöðin Ársel býður upp á fjölbreytt og skemmtilegt starf fyrir börn og unglinga.
- Skólastjóri er Guðlaug Sturlaugsdóttir
- Aðstoðarskólastjóri unglingadeildar er Guðrún Erna Þórhallsdóttir
- Aðstoðarskólastjóri yngri deildar er Þórhildur Þorbergsdóttir
- Deildarstjóri stoðþjónustu er Rannveig Þorvaldsdóttir
Farsæld barna
Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.
Tengiliður Árbæjarskóla er: Rannveig Þorvaldsdóttir
Nánari upplýsingar um lögin og þjónustuna eru á heimasíðunni farsaeldbarna.is
Skólastarfsemi
Lotuskiptingar list- og verkgreina
Áætlanir, stefnur og skýrslur
Hvað er framundan í Árbæjarskóla? Í starfsáætlun finnur þú meðal annars stefnu skólans fyrir síðasta ár, skipulag kennslu og ótalmargt fleira.
Skólaráð
Við grunnskóla skal starfa skólaráð sem er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skólahald. Skólaráð tekur þátt í stefnumörkun fyrir skólann og mótun sérkenna hans.
Skólaráð Árbæjarskóla 2023–2024:
Fulltrúi stjórnenda:
- Guðlaug Sturlaugsdóttir, skólastjóri
Fulltrúar kennara:
Fulltrúi starfsfólks:
Fulltrúar foreldra:
Fulltrúar nemenda:
- Jón Kristófer Ólason, 10. bekk
- Iga Nowicka, 9. bekk
- Atli Atlason, 7. bekk
- Magdalena Rós Ásgeirsdóttir, 6. bekk
Fulltrúi grenndarsamfélags:
- Hörður Guðjónsson, Fylki
Fulltrúi frístundamiðstöðvarinnar Ársels:
Foreldrasamstarf
Við erum öll í þessu saman, enda er oft sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Í skólum borgarinnar er markvisst unnið að því að auka samráð við foreldra og styrkja aðkomu þeirra að skólastarfi. Foreldrafélag er starfrækt í öllum skólum Reykjavíkurborgar.
Við Árbæjarskóla starfar öflugt foreldra félag sem hefur það að markmiði að styðja skólastarfið, stuðla að velferð nemenda og efla tengsl heimila og skóla. Foreldrafélag hvers skóla setur sér starfsreglur, m.a. um kosningu í stjórn félagsins og kosningu fulltrúa í skólaráð.
Stjórn foreldrafélagsins skipa eftirtaldir aðilar:
- Hildur Jóna Friðriksdóttir, formaður
- Vera Sveinbjörnsdóttir, gjaldkeri
- Ester Hlíf Sigurðardóttir
- Elísabet Eydís Leósdóttir
- Andri Már Sigurðsson
- Ásta Skúladóttir
Netfang: foreldrafelarb@gmail.com
Undanþága frá skólasókn
Hér má nálgast beiðni um leyfi í 3-5 daga fyrir nemendur.
Hér má nálgast beiðni um leyfi sem er umfram eina viku.
Skólareglur
Skólahverfi Árbæjarskóla
Í Reykjavík eru mörg skólahverfi og lögheimili barnsins ræður því í hvaða hverfisskóla það fer. Barnið þitt hefur forgang í sinn hverfisskóla. Engu að síður eiga allir foreldrar kost á að sækja um skóla fyrir börn sín hvar sem er í borginni samkvæmt reglum um skólahverfi, umsókn og innritun. Hér finnur þú upplýsingar um hvaða götur tilheyra skólahverfi Árbæjarskóla.